Færslur: 2012 Janúar

03.01.2012 20:43

Ótitlað

Yfirlit yfir starfsemi ársins 2011 hjá Björgunarsveitnni Þingey


Síðastliðið ár var býsna fjölbreytt hjá félögum Þingeyjar. Reyndar var starfið frá áramótunum býsna hefðbundið en frá því að hefðbundnum vinnufundum lauk síðasta vor og fram í seinnipart Júlímánaðar var unnið markvisst að undirbúningi fyrir Fjögurra skóga hlaupið sem var haldið í Fnjóskadal 23. Júlí. Unnið var í því að hreinsa hlaupaleiðina og var þar um að ræða seinasta hluta leiðarinnar niður af Hálsmelunum og inn á Bjarmavöll. Tók sú vinna nokkra daga, en með góðum styrk frá Skógrækt Ríkisins sem léði okkur tæki til hreinsunarinnar þá tókst það að lokum.

Síðan var leiðin merkt vel og rækilega og gengið úr skugga um að hún væri klár eins og best gæti orðið. Meðfram þessari vinnu var verið að afla styrktaraðila fyrir hlaupið og gekk sú vinna vonum framar. Fengum við allsstaðar  mjög góðar viðtökur og jákvæðar undirtektir. Einnig var hópur í því að skipuleggja flutningsmál hlaupara en þeir voru allir keyrðir á upphafsstaði. Leitað var til atvinnubílstjóra á svæðinu sem einnig eru flestir félagar í sveitinni og sáu þeir um þessa hlið mála.  Síðan var einn hópur í því að útbúa verðlaun og útvega þau og var farið í fyrirtæki hér á nærsvæðinu eftir slíku og fengum við allsstaðar góðar undirtektir og kunnum við öllum þeim sem styrktu þetta með einhverju móti kærar þakkir fyrir stuðninginn.

Síðan rann hlaupadagurinn upp með alveg brakandi sumarblíðu og vel yfir 20 stiga hita. Þátttakendur voru rétt um 70 í öllum vegalengdunum fjórum sem okkur þótti afskaplega gott svona í fyrsta skipti.



Sveitin fór í hálendisgæslu norðan Vatnajökuls helgina 12.14. Ágúst. Var helgin frekar tíðindalítil hjá þeim félögum en ágætis viðbót í reynslubankann. Farið var á báðum bílum sveitarinnar í sumar.

Starfið hófst svo aftur í Október með hefðbundnum vinnukvöldum sem náðu svo hámarki í flugeldasölu sveitarinnar núna í lok árs.



Sveitin endurnýjaði annan vélsleðann núna rétt fyrir jólin og er þar um að ræða Arctic Cat M8 árg 2012. Með tilkomu hans er verið að skipta út Lynx sleðanum sem er nú til sölu. Nánari upplýsingar í því sambandi veitir Jón Ingi í síma 8639764.



Að lokum vill Björgunarsveitin Þingey senda öllum sínum stuðningsaðilum og velunnurum bestu jóla og nýárskveðjur með von um farsælt komandi ár og þakka þeim öllum fyrir ómetanlegan stuðning á undanförnum árum.


Einar Ingi Hermannsson  



  • 1
Flettingar í dag: 78
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 83
Gestir í gær: 18
Samtals flettingar: 185903
Samtals gestir: 41842
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:52:19