Flokkur: Fróðleikur
24.01.2009 19:43
GPS
Haldið var GPS námskeið hjá okkur í dag og var góð mæting 20 manns,kennari var Stefán Markússon frá Landsbj.
17.01.2008 21:23
Tetra námskeið
Tetra námskeið.
Haldið verður námskeið í notkun á Tetra fjarskiptakerfinu ,verður það á Húsavík hjá félögum okkar í bjsv, Garðari sunnudaginn 27 janúar kl. 12 -16 .
Skráið ykkur hjá formanni 866 9850
03.10.2007 23:44
Veðursíða
Skoðið þessa norsku veðursíðu ,hún bíður upp á mjög nákvæma leit td. ef þú setur inn Stórutjarnir þá kemur upp veðurspá fyrir Stórutjarnir og nágrenni.
25.10.2006 00:42
Ferðasaga
Kverkfjallaferð 23-9 2006
Lögðum af stað úr Bárðardal frá Stóruvallabrúnni rétt rúmlega fimm um
morguninn. Keyrðum beina leið suður að vegamótum við Fjórðungsvatn og
vorum komnir þar rétt rúmlega sjö um morguninn. Þar hittum við Súlumenn
og héldum svo áfram beinustu leið inn í Vonarskarð með smá stoppi á
Gjóstuklifi. Síðan var ekki stoppað fyrr en við jökulröndina neðan við
Köldukvíslarjökul þar sem teknar voru út olíutunnur og dælt á bílana áður
en lagt var á jökulinn. Síðan var lagt í hann upp jökulinn hægt og
örugglega. Eftir krókaleiðum komumst við upp á jökulinn og gátum keyrt
nokkuð óhikað austur í Kverkfjöll. Þegar þar var komið við sögu byrjuðu
vandræðin að láta á sér kræla. Byrjaði það með því að við affelguðum
fyrst eitt dekk og skömmu seinna annað bæði á sömu hlið. Eftir töluvert
stímabrak tókst okkur með dyggri aðstoð ferðafélaga okkar að koma fyrra
dekkinu á. Þá héldu þeir áfram og við ætluðum að koma á hælana á þeim
en þá vildi ekki betur til en svo að hitt dekkið fór út af og fórum við
strax að reyna koma lofti í það þar sem við vorum staddir. Bar þá að
nokkra félaga úr Ferðaklúbbnum 4x4 sem voru í skemmtiferð á jöklinum og
aðstoðu þeir okkur með hitt dekkið með því að lána okkur kolsýrukút til
að sprengja dekkið út á felguna.
Gekk það eins og í sögu og gátum við þá haldið áfram þegar þessu var
lokið. Komumst við hér um bil á áfangastað þar sem endurvarpinn var en
snérum við þegar við mættum þeim félögum okkar með endurvarpann
liggjandi á sleða aftan í einum bílnum. Eltum við þá síðan á nýja
staðinn þar sem átti að koma honum fyrir að nýju og aðstoðuðum við að
festa hann þar niður. Síðan fengum við okkur að drekka áður en lagt var
í hann til baka. Á þessum tímapunkti höfðum við Palli sætaskipti þar
sem hann var búinn að keyra nánast neðan úr Mýri um morguninn og tók
undirritaður við stýrinu. Nú var keyrt í einni dorru alveg niður af
Köldukvíslarjöklinum og ekkert stoppað neitt að ráði fyrr þangað var
komið. Þar var klárað að tæma tunnurnar og þær settar inn í Fordinn hjá
Súlum aftur. Þarna er klukkan orðin hálf sex og ákváðum við Palli að
bruna beinustu leið heim og skildu því leiðir þarna undir jöklinum. Bar
svo ekkert til tíðinda á leiðinni heim og vorum við komnir niður að
brúnni við Stóruvelli um klukkan níu um kvöldið þreyttir og pínu
svekktir út af dekkjaveseninu en himinlifandi með ferðaveðrið. Slæ
ég svo botninn í ferðasöguna hér.
Páll Kjartansson
Einar Ingi Hermannsson
Myndir úr ferðinni eru í mynda albúmi.
- 1

